Um táknum.is

táknum.is er orðasafn þar sem þú getur leitað að orði og séð táknið fyrir það úr Tákn með tali, ásamt framburði. Vefurinn er hugsaður fyrir foreldra, kennara og alla aðra sem nota Tákn með tali í daglegu lífi og starfi.

Hægt er að velja myndir af táknum, hlaða þeim niður eða prenta þær, eina eða fleiri á hverja síðu.

Hvað er Tákn með tali?

Tákn með tali er tjáskiptaaðferð þar sem tákn eru notuð samhliða töluðu máli. Táknin styðja við skilning og tjáningu, til dæmis hjá börnum sem eru að læra að tala. Nánari upplýsingar um aðferðina og námsefnið eru á námsefnisvef MMS.

Uppruni efnis

Táknin og myndirnar á vefnum koma úr námsefninu Tákn með tali. Höfundarréttur á táknmyndunum er hjá höfundum þeirra.

Söfnun tákna
Björk Alfreðsdóttir og Sigrún Grendal
Myndefni
Sigurborg I. Sigurðardóttir
Heimild
Tákn með tali á namsefni.mms.is

Framburður

Hljóðskrár með framburði orðanna eru búnar til með talgervli (röddinni Dóru frá Amazon Polly). Framburðurinn getur því verið ónákvæmur á stöku stað.

Lýsingar og flokkar

Unnið er að lýsingum á því hvernig táknin eru gerð. Aðeins lýsingar sem hafa verið yfirfarnar birtast á vefnum. Táknin eru líka flokkuð eftir efni til að auðvelda leit, og sú flokkun er í vinnslu.